18.07.2006 07:24:56 / gunnar
Íslendingar í Beirút
Verð að agnúast yfir þessum stanzlausu fréttum af Íslendingum í
Beirút. Hvar eru fréttirnar af blessuðu fólkinu sem þjáist? Maður
sér bara teljara (svo og svo margir eru látnir) á meðan maður les
um hvar Íslendingarnir gista (sbr. Finnarnir hýsa Íslendingana)??
Hvernig væri að sýna smá tilburði með að setja sig inn í þjóðarsál
fólksins á svæðinu í stað þess að tala um það sem tölur á
blaði?
Fréttaflutningur hér er allt öðruvísi, menn hafa auðvitað efni á að
senda fréttaritara til Líbanon og til annarra landa en viðtöl
þeirra við hinn almenna borgara mynda megin part frétta hér. Það
ætti ekki að vera erfitt að þýða eitthvað af slíku efni? Koma
nú moggi.is smá "Research".